Skoraði þrennu á Stamford Bridge (myndskeið)

Matheus Cunha var í aðalhlutverki hjá Wolves þegar liðið vann glæsilegan útisigur á Chelsea, 4:2, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Stamford Bridge í London í dag.

Cunha skoraði þrennu í leiknum eftir að Cole Palmer hafði skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Chelsea. Úlfarnir svöruðu því með fjórum mörkum, þar af einu sjálfsmarki, áður en Thiago Silva skoraði sárabótarmark undir lokin.

Mörkin má sjá í myndskeiðinu en mbl.is sýnir mörk og tilþrif úr ensku úrvalsdeildinni í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert