Ótrúlegasti lokakafli ársins (myndskeið)

Kobbie Mainoo var hetja Manchester United í ótrúlegum 4:3-útisigri á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Mainoo skoraði sigurmarkið á sjöundu mínútu uppbótartímans, eftir að Pedro Neto hafði jafnað fyrir Wolves á fimmtu mínútu uppbótartímans. Max Kilman minnkaði muninn í 3:2 á 85. mínútu.

Marcus Rashford, Rasmus Höjlund og Scott McTominay skoruðu einnig fyrir United og Pablo Sarabia skoraði fyrsta mark Wolves.

Svipmyndir úr þessum ótrúlega leik má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert