Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er opinn fyrir því að leyfa framherjanum Daniel Sturridge að yfirgefa félagið í janúar ef marka má heimildir Sky.
Sturridge hefur verið orðaður við Inter að undanförnu en Sevilla hefur einnig áhuga á að fá hann í sínar raðir. Hann hefur lítið fengið að spila á tímabilinu þar sem Roberto Firmino er aðalframherji liðsins.
Sturridge er búinn að skora 63 mörk í 133 leikjum fyrir Liverpool á fimm árum, en hann gekk í raðir félagsins frá Chelsea. Sturridge á 18 mánuði eftir af samningi sínum við Liverpool, en Inter vill fá hann á láni á meðan enska félagið vill helst selja.