Willian er ekkert á förum

Willian í leik með Chelsea.
Willian í leik með Chelsea. AFP

Brasilíski miðjumaðurinn Willian vísar þeim sögusögnum á bug að hann gæti yfirgefið herbúðir Englandsmeistara Chelsea í sumar.

„Ég er með samning við Chelsea til ársins 2020 og ég er mjög ánægður hjá félaginu. Ég hef átt frábær samskipti við alla hjá Chelsea sem og stuðningsmenn félagsins. Þeir hafa reynst mér frábærir síðan ég kom til liðsins. Við erum aftur komnir í Meistaradeildina og ég hlakka til að spila aftur í henni,“ segir Willian í viðtali við enska blaðið Evening Standard en hann hefur verið orðaður við lið eins og Manchester United.

Willan hefur ekki átt fast sæti í liði Chelsea á tímabilinu en hann kom til Lundúnaliðsins frá rússneska liðinu Anzhi Makhachkala árið 2013.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert