Jóhann í leikmannahópi Burnley

Jóhann Berg Guðmundsson í leik með Burnley gegn Manchester City …
Jóhann Berg Guðmundsson í leik með Burnley gegn Manchester City fyrr á leiktíðinni. AFP

Jóhann Berg Guðmundsson er í leikmannahópi Burnley sem mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla á Turf Moor klukkan 13.15 í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem hann er í leikmannahópi Burnley síðan hann meidd­ist á hné í bikarleik um miðjan fe­brú­ar.

Meiðsli hafa gert Jó­hanni erfitt fyr­ir á leiktíðinni, en hann tognaði í læri und­ir lok nóv­em­ber og aft­ur í janú­ar. Hann hef­ur komið við sögu í 16 af 32 deild­ar­leikj­um Burnley í vet­ur, en liðið er í 15. sæti deildarinnar og er fimm stig­um frá fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert