Gæti breytt öllu fyrir Akureyringa

„Ég veit ekki alveg hvar ég hef KA,“ sagði Aron Elvar Finnsson, íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um KA.

KA er spáð 7. sæti deild­ar­inn­ar í spá íþrótta­deild­ar Árvak­urs en liðið hafnaði í sjöunda sæt­inu á síðustu leiktíð.

Gætu alveg farið ofar

„Mér finnst sjöunda sætið eðlileg spá fyrir þá en þeir gætu alveg farið ofar,“ sagði Aron Elvar.

„Þeir gætu líka farið neðar en þeir verða aldrei í fallbaráttu. Ef að KA-menn ná að koma Viðari Erni Kjartanssyni í stand og hann fer að skora mörk þá gæti það breytt öllu fyrir þá,“ sagði Aron Elvar meðal annars.

Upphitunarþátt Dagmála fyrir Bestu deild karla má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Akureyringum er spáð 7. sætinu.
Akureyringum er spáð 7. sætinu. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert