„Liðin hans Davíðs Smára hafa verið skipulögð, þétt til baka og mjög beinskeytt fram á við,“ sagði Aron Elvar Finnsson, íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um Vestra.
Vestra er spáð 11. sæti deildarinnar og falli í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í 4. sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð og hafði betur gegn Aftureldingu í umspili um sæti í efstu deild.
„Það er skrítið að segja það en ég hef ekkert rosalega miklar áhyggjur af Vestra fyrir þetta tímabil,“ sagði Aron Elvar.
„Það eru ekki mörg lið sem fara vestur og sækja sigur, það munu flest lið lenda í vandræðum þarna, ég get nánast lofað ykkur því,“ sagði Aron Elvar meðal annars.