„Ég held að það sé nokkuð raunhæft að taka skref í rétta átt og byrja á því,“ sagði Viðar Guðjónsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um Fram.
Fram er spáð 8. sæti deildarinnar í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í tíunda sætinu á síðustu leiktíð.
„Félagið er þannig uppsett að menn eru ekki að spenna bogann,“ sagði Viðar.
„Menn eru ekki að fara í einhverja ævintýramennsku sem mun koma í bakið á þeim seinna og það kæmi mér á óvart ef að einhver stór biti myndi skrifa undir hjá félaginu rétt fyrir mót,“ sagði Viðar meðal annars.