Með mest spennandi liðið í deildinni

„Fyrir mér eru þeir með mest spennandi liðið í deildinni,“ sagði Viðar Guðjónsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um Stjörnuna.

Garðbæingum er spáð 5. sæti deild­ar­inn­ar í spá íþrótta­deild­ar Árvak­urs en liðið hafnaði þriðja sæt­inu á síðustu leiktíð.

Gerði kraftaverk með liðið

„Jökull tók við þeim og gerði kraftaverk með liðið,“ sagði Viðar.

„Það skrúfar væntingarnar aðeins upp fyrir þetta tímabilið og spurningin er hvort þeir nái að halda dampi í sumar. Þegar þú ert með unga leikmenn þá þarftu ákveðið hömluleysi inn á vellinum og ef þeir ná upp réttu blöndunni þá gætu þeir gert ennþá betur en í fyrra,“ sagði Viðar meðal annars.

Upphitunarþátt Dagmála fyrir Bestu deild karla má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Emil Atlason fagnar marki í Garðabænum á síðustu leiktíð.
Emil Atlason fagnar marki í Garðabænum á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Kristinn Steinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert