Umdeildasta fataval Melaniu Trump í gegnum árin

Forsetafrú Bandaríkjanna, Melania Trump, hefur skapað umtal með fatavali sínu …
Forsetafrú Bandaríkjanna, Melania Trump, hefur skapað umtal með fatavali sínu oftar en einu sinni. AFP

Melania Trump forsetafrú Bandaríkjanna hefur reglulega ratað í fjölmiðla fyrir þau föt sem hún hefur klæðst á viðburðum tengdum starfi eiginmanns hennar. Sum eru eftirminnilegri en önnur og sum hafa farið meira fyrir brjóstið á fólki en önnur.

Frú Trump er iðulega vel til fara og klæðist yfirleitt því dýrasta og besta. Þá hefur einmitt verðmiðinn á flíkum hennar og handtöskum vakið athygli, eins og níu milljón króna jakkinn sem hún klæddist á G7-leiðtogafundinum á Sikiley í maí 2017. 

Það umdeildasta er þó án efa jakkinn sem hún klæddist þegar hún heimsótti búðir fyrir börn ólöglegra innflytjenda í Bandaríkjunum í júní 2018. 

Apríl 2018 

Á öðrum degi í heimsókn forsetahjónanna í Frakklandi klæddist Melania gullfallegri dragt frá Michael Kors. Það var þó ekki hún sem vakti athygli heldur Hervé Pierre-hatturinn sem var á milli tannanna á fólki. Sumum fannst hún líkjast Michelle Pfeiffer í Scarface, aðrir sáu hana sem Beyoncé í Formation-tónlistarmyndbandinu. 

Melania Trump og Birgitte Macron, eiginkona Emmanuel Macron.
Melania Trump og Birgitte Macron, eiginkona Emmanuel Macron. AFP

Maí 2017 

Í heimsókn forsetahjónanna til Sádi-Arabíu klæddist frú Trump brúngrænum kjól með belti. Það vakti athygli að kjóllinn var aðeins hnésíður og hún harðlega gagnrýnd fyrir að sýna leggina í heimsókn sinni til landsins. 

Melania Trump í Sádi Arabíu.
Melania Trump í Sádi Arabíu. AFP

Október 2018

Melania heimsótti heimsálfuna Afríku án eiginmanns síns í október 2018. Í safaríferð í Naróbí ákvað forsetafrúin að vera með hvítan „sólhjálm“. Valið á hjálminum var gagnrýnt en slíkir hjálmar eiga sér tengingu í nýlendustefnu vestrænna ríkja í Afríku. 

Melania Trump með sólhjálminn í Naróbí.
Melania Trump með sólhjálminn í Naróbí. AFP

Maí 2017

Á leiðtogafundi G7-ríkjanna á Sikiley á Ítalíu árið 2017 urðu margir kjaftstopp þegar forsetafrúin steig út úr bílnum í litríkum jakka frá Dolce & Gabbana. Jakkinn kostaði 9,6 milljónir íslenskra króna og var það helst verðmiðinn sem fór fyrir brjóstið á fólki. 

Á leiðtogafundinum á Skiley í 9,6 milljón króna jakka.
Á leiðtogafundinum á Skiley í 9,6 milljón króna jakka. AFP

September 2017 

Þegar Trump-hjónin fóru í heimsókn til Púertó Ríkó eftir fellibylinn Harvey vakti frú Trump mikla athygli fyrir skóbúnað sinn en hún klæddist svörtum hælum frá Manolo Blahnik.

Frú Trump og hælarnir í Púertó Ríkó.
Frú Trump og hælarnir í Púertó Ríkó. AFP

Júní 2018 

Sú flík sem hefur verið hvað umdeildust á ferli Melaniu Trump sem forsetafrúar er án efa jakkinn sem hún klæddist þegar hún var á leið í heimsókn í búðir fyrir börn ólöglegra innflytjenda í Texas. Jakkinn er frá Zöru. Á bak­hlið jakk­ans er áletr­un­in: „I really don't care, do u?“ eða: „Mér er al­veg sama, hvað með þig?“

Melania Trump, forsetafrú, í jakkanum sem vakti mikla athygli.
Melania Trump, forsetafrú, í jakkanum sem vakti mikla athygli. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál