Mætti í strigaskóm í brúðkaupsveisluna

Serena Williams og eiginmaður hennar Alexis Ohanian mættu í konunglega …
Serena Williams og eiginmaður hennar Alexis Ohanian mættu í konunglega brúðkaupið í Windsor. AFP

Tennisstjarnan Serena Williams lætur ekki háa hæla eyðileggja fyrir sér gott partí. Williams var í strigaskóm við síðkjólinn sem hún klæddist í brúðkaupsveislu Harry og Meghan á laugardagskvöldið. 

Williams mætti í bleikum hælaskóm við bleika kjólinn frá Versace sem hún klæddist þegar hún mætti til kirkjunni ásamt eiginmanni sínum Alexis Ohanian. Seinna um kvöldið skipti hún yfir í síðkjól frá Valentino. 

Kjóllinn var það síður að hún gat falið strigaskóna undir kjólnum. Engin tók þannig eftir strigaskónum en Williams greindi frá því á Instagram að hún gengi oft í strigaskóm undir síðkjóla. Þetta var reyndar ekki fyrsta skipti sem Williams mætti í strigaskóm í brúðkaup en hún klæddist strigaskóm í sínu eigin brúðkaupi fyrir áramót. 

Williams gat því dansað út nóttina í Frogmore House í strigaskónunum án þess að finna til. Tennisstjarnan er sögð hafa unnið bjór borðtennis í veislunni um kvöldið og komu þá strigaskórnir sér eflaust vel. 

Meghan og Harry voru í spariskóm í þegar þau mættu …
Meghan og Harry voru í spariskóm í þegar þau mættu í brúðkaupsveislu sína. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál