Af hverju ekki eins og Great Gatsby?

Mia Farrow og Robert Redford úr kvikmyndinni The Great Gatsby …
Mia Farrow og Robert Redford úr kvikmyndinni The Great Gatsby frá árinu 1974. Pinterest.

Nú fer vorið senn að koma og þá er gaman að velta fyrir sér hverju er viðeigandi að klæðast. Við mælum með fatnaði í anda kvikmyndarinnar The Great Gatsby.

Kvikmyndirnar um Great Gatsby eftir sögu F. Scott Fitzgerald eru orðnar tvær. Sú fyrri kom út árið 1974 með þeim Mia Farrow og Robert Redford í aðalhlutverki, en sú seinni kom út árið 2013 með þeim Leonard DiCaprio og Carey Mulligan. 

Takið eftir fallegum línum við það að klæðast öllu ljósu. …
Takið eftir fallegum línum við það að klæðast öllu ljósu. Himnesk kaðlapeysa Redford hefur verið notuð á hugmyndaborð hönnuða til dagsins í dag. Pinterest.

Það sem einkennir tískuna frá þessu tímabili þriðja áratugs síðustu aldar eru ljósir litir. Hvítar sokkabuxur og lágt mittið. Vel greitt hárið í bylgjur var ávallt með glansáferð. Hattar og klútar um höfuðið voru vinsælir. Lág mittislína og gljái í efnavali ásamt útsaumi. 

Æðislegt hár á Mia Farrow í kvikmyndinni.
Æðislegt hár á Mia Farrow í kvikmyndinni. Pinterest.

Við spyrjum því af hverju ekki að klæða sig upp á með þetta tímabil í huga um þessar mundir. Að hefja vorið með ljós í hjarta?

Nútímaleg útfærsla á hári og förðun í anda The Great …
Nútímaleg útfærsla á hári og förðun í anda The Great Gatsby. Pinterest.

Þegar kemur að förðuninni er fallegt að setja ljósan blýant inn á augnhvarmana. Vera með fallega ljósa húð og annaðhvort dökkar varir eða ljósrauðar.

Við erum komin til ársins 2013 en glæsileikinn er engu …
Við erum komin til ársins 2013 en glæsileikinn er engu síðri. Pinterest.
Er til eitthvað fallegra en tindrandi kjóll og perlur á …
Er til eitthvað fallegra en tindrandi kjóll og perlur á hendi? Úr kvikmyndinni The Great Gatsby frá árinu 2013. Pinterest.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál