Það geislaði af forsetafrú Íslands, Elizu Reid, í opinberri heimsókn forsetaembættisins til Svíþjóðar. Hún klæddist glæsilegum vínrauðum kjól frá danska hönnuðinum By Malene Birger og var með hálsmen við úr Aurum. Hálsmenið, sem er úr silfri, hefur verið til sýnis í glugga verslunarinnar. Guðbjörg Ingvarsdóttir skartgripahönnuður og eigandi Aurum er þekkt fyrir sitt fallega handbragð og allt sem hún gerir er vandað.
Það vakti athygli að Eliza var í húðlituðum sokkabuxum og húðlituðum skóm við kjólinn. Smartland eignar sér heiðurinn af þessu því fyrir skömmu sögðum við frá því að konur ættu fyrst að velja sokkabuxur svo kjólinn. Sokkabuxurnar skiptu nefnilega lykilmáli þegar kæmi að klæðaburði. Og húðlitaðar sokkabuxur við húðlitaða skó lengja fótlegginn og gera okkur glæsilegri.
Glöggir lesendur Smartlands hafa líka tekið eftir því að hár forsetafrúarinnar hefur síkkað og það klæðir hana sérlega vel að hafa hárið vel blásið.