Nóttin rankaði við sér um kvöldmatarleitið fyrir viku síðan með bilaðan móral. Það er náttúrlega bömmer að hringja sig veika í vinnunni þegar samstarfsmennirnir á lögmannsstofunni þurfa „sinn tíma“ til þess að hitta viðskiptavini yfir dönsku smurbrauði og ákavíti sex daga vikunnar. Það er álag.
Orkustigið hefur líka verið eitthvað svo lágt í vinnunni síðustu vikur að það mætti halda að eigendurnir á stofunni séu í lífslokameðferð, nema náttúrlega pabbi minn. Hann fer alltaf út að skokka áður en hann mætir í vinnuna. Það þarf þó enginn að örvænta því það þarf bara að hella í smá jólabjór og gefa þeim nokkur Mezcal skot – þá hressast þeir óstjórnlega mikið.
Nóttin notaði þessa tvo veikindadaga til þess að djúphreinsa á sér húðina og bera á sig líkamsmaska, horfa á Kardashians, raspa á sér hælana og raka sig undir höndunum. Nóttin ákvað líka að skrá sig á Smitten því Tinder er orðið svo ferlega þreytt.
Nóttin þarf eiginlega að komast í áfallameðferð eftir þetta niðurhal. Það er öruggast að nefna engin nöfn. Einhver nöfn byrja á A og enda á Þór. Eftir tveggja daga veikindaleyfi var Nóttin komin með upp í kok af samverustundum með sjálfri sér og glötuðum símaöppum og stalst á barinn. Á Kramber var rithöfundurinn Auður Jónsdóttir í góðum félagsskap með Ásgeiri Brynjari Torfasyni hirðálitsgjafa RÚV í fjármálum.
Kosturinn við að taka svona veikindadaga á lögmannsstofunni er að Nóttinni var fagnað eins og hún væri Díana prinsessa endurborin þegar hún loksins mætti. Þetta var svolítið eins og að fara á sjálfsstyrkingarnámskeið með innifaldri háreyðingu. Nóttin gætti þess þó að hósta létt á um það bil hálftíma fresti til þess að samstarfsfélagarnir, og pabbi, myndu ekki að fatta að hún væri ekki með Covid.
Í desember eru allir dagar fössarar en fimmtudagur er svolítið eins og löllari. Aðaldagurinn þannig séð - tala nú ekki um ef marka má fjöldann sem var í bænum.
Kastrup var þéttsetinn á fimmudagskvöldið en þar voru félagarnir Grímur Garðarsson eigandi Bestseller á Íslandi og Andri Gunnarsson lögmaður og eiginmaður Rakelar í Snúrunni í essinu sínu. Þessi jólamatseðill virðist trekkja að.
Nóttin rakst á nokkrar Exedra-drottningar á Kjarval seinna um kvöldið. Þær höfðu tekið daginn snemma og byrjað á jólarölti um klukkan 14.00 þennan fimmtudag. Framakonur þurfa að vinna í tengslanetinu sínu og það gengur náttúrlega ekki að vera hlekkjaðar við vinnustaði sína alla daga. Margrét Íris Ármann Baldursdóttir fjárfestir (sem keypti húsið af Antoni Þórarinssyni athafnamanni) var að sjálfsögðu á Kjarval þetta kvöld.
Þar var líka Ragnhildur Ágústsdóttir hjá Lava Show og Karitas Diðriksdóttir hjá Bioeffect.
Nóttin lét teyma sig út í algera vitleysu þegar hún samþykkti að fara með einhleypu vinkonum sínum á Baggalútstónleika á laugardagskvöldið. Þær voru á því að þetta væri gott tækifæri til að hitta einhverja nýja. Einhverja nýja menn sem eru ekki á Tinder eða Smitten. Þær hefðu betur gert eins og kvenkyns starfsmenn löggurnar og keypt sér strippara í Póllandi. Það hefði líklega verið meira fjör! Nóttin þurfti að hafa sig alla við að sofna ekki á tónleikunum.
Þéttur og kátur drykkjurmaður úr Kópavogi (ekki Erpur samt) með utanbæjarstrípur, sá til þess að hún festi ekki blund því hann var alltaf að detta fram á sætið. Nóttin gerði því ekkert annað en að hrökkva upp reglulega eða þangað til hann dó áfengisdauða í sætinu sínu og kona með fake-merkjavörutösku tösku og skvísuklippingu (með rakað öðru megin) reyndi að vekja hann.
Eftir þessa hræðilegu upplifun var ferðinni heitið í Iðnó þar sem Lilja R. Einarsdóttir fjárfestir hélt upp á 50 ára afmæli sitt. Vinkonu Nóttarinnar var boðið og náði hún að smygla fjórum með sér inn enda enginn andlitsskanni við hurðina.
Þar var Birgir Jónsson forstjóri Play í miklu stuði en hann var ekki sá eini því fyrrum kollegi hans, Skúli Mogensen, var sólbrúnn og sællegur eftir mánaðardvöl á Balí. Þar var líka Hildur Hafstein skartgripahönnuður, Gyða Dan Johansen ofurbeib, Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi krull og hans guðdómlega kona, Íris Ösp Bergþórsdóttir, Ekkert rusl-drottningin Margrét Stefánsdóttir og eiginmaður hennar, Sigurður Örn Ágústsson fyrrverandi forstjóri Bláfugls. Þar var líka Finnur Harðarson leigutaki við Stóru-Laxá í miklu stuði! Nóttin var svolítið að reyna að gefa honum undir fótinn en það skilaði ekki árangri.
Hvað gerir skvís á sunnudögum á öðrum í aðventu? Nú, hún fer í Garðheima, aðra helgina í röð. Hún var að vonast eftir því að rekast á einhverja fola en hrasaði nánast um umtalaðasta par landsins, Vítalíu og Arnar Grant. Þau eru greinilega komin í ofsafengið jólaskap. Nóttinni brá svo þegar hún sá þau að hún steingleymdi hvað hún ætlaði að kaupa. Bömmer.
Helginni var lokað á Kastrup en þar var Snorri Másson fjölmiðlamaður í miklu stuði ásamt vinum sínum. Þar voru líka hjónin Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir með svört týpugleraugu, sem eru hugsanlega lesgleraugu. Hver veit. Það var kliður á staðnum sem er var nokkuð þéttsetinn eða þangað til Kári Stefánsson gekk inn með ungri konu. Ekki er vitað hver tengsl þeirra eru.