Brynja og Jóhannes giftu sig í Króatíu

Brynja Gísladóttir og Jóhannes Kr. Kristjánsson giftu sig óvænt við …
Brynja Gísladóttir og Jóhannes Kr. Kristjánsson giftu sig óvænt við ströndina í Makarska á Króatíu. Skjáskot/Facebook

Jóhannes Kr. Kristjánsson, blaðamaður og framleiðandi, og Brynja Gísladóttir gengu í það heilaga við ströndina í Makarska í Króatíu í gær, mánudag. 

„Í gær fögnuðum við fimmtugsafmæli Brynju minnar - og komum öllum á óvart og giftum okkur við ströndina í Makarska. Við hjónakornin erum alsæl og ástfangin sem aldrei fyrr,“ skrifaði Jóhannes við fallega mynd af nýgiftu hjónunum. 

Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál