Leo og Ása hjón í eitt ár

Leo Alsved og Ása Steinarsdóttir gengu í hjónaband hinn 16. …
Leo Alsved og Ása Steinarsdóttir gengu í hjónaband hinn 16. júlí 2022 við fallega athöfn í Króatíu. Ljósmynd/Ása Steinars

Eitt ár er liðið frá því ferðaljósmyndarinn Ása Steinarsdóttir og Leo Alsved gengu í það heilaga í sannkölluðu draumabrúðkaupi á eyjunni Vis í Króatíu. Eyjuna kannast margir við úr kvikmyndinni Mamma Mia, en þar er að finna fallegar strendur, arkitektúr frá 17. öld og einstakt landslag.

Ása birti fallega myndaröð frá brúðkaupinu í tilefni dagsins í gær. Það hefur verið nóg að gera hjá Ásu undanfarna daga, en hún hefur verið önnum kafin við að mynda eldgosið við Litla-Hrút.

Héldu upp á brúðkaupsafmælið í húsbíl

„Í dag höldum við upp á brúðkaupsafmælið okkar í húsbílnum okkar. Svo það er „vanniversity“. Við erum líka að opna bréf sem brúðkaupsgestir okkar skrifuðu til okkar fyrir ári síðan sem við sögðum þeim að við myndum lesa í dag,“ skrifaði Ása meðal annars við færsluna.

„Ég fékk fullt af hugmyndum frá ykkur um að skapa hefðir í kringum þennan dag. Ég elskaði þá hugmynd að gera eitthvað í brúðarkjólnum til að gefa honum lengri ævi og halda upp á þennan dag,“ bætti hún við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál