Fíknó eyðir meira í bílaleigubíla en þetta

Birgir Örn Guðjónsson eða Biggi lögga eins og hann er …
Birgir Örn Guðjónsson eða Biggi lögga eins og hann er kallaður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýjasti viðmælandinn í hlaðvarpinu Það er von er Birgir Örn Guðjónsson sem er betur þekktur sem Biggi lögga. Biggi hefur mikinn áhuga á fíkn og fólki sem glímir við fíknisjúkdóminn.

Hluti af starfi lögreglu er að eiga við fólk undir áhrifum hugbreytandi efna, eins og gefur að skilja.

„Það verða alltaf aðilar sem verða alltaf reiðir út í lögregluna, þetta er bara þannig starf. Það er enginn reiður út í slökkviliðsmenn, þeir eru the „good guys“.“

Lögreglan má ekki vera viðkvæm fyrir gagnrýni að sögn Bigga. 

Þegar umræðan um fíkn og lögreglu kemur upp segir Biggi:

„Það má deila um hversu stór partur þetta á að vera af okkar starfi, þá komum við að ákveðnu úrræðaleysi sem við erum að kljást við. Þetta er spurning, fíkn, er það lögreglunnar? Er það félags- eða heilbrigðiskerfis?“

Biggi gagnrýnir kerfið fyrir að vinna ekki saman og að lögreglan verði hálfgerð ruslakista og það sé litið á það sem lausn að setja veika einstaklinga í fangaklefa.

Spurður hvort lögreglumenn fái sérstaka þjálfun í því að umgangast fólk, sem glímir við fíknivanda, og auka skilning segir hann:

„Helsta þjálfunin kemur í raun og veru úr Hollywood-bíómyndum.“

Það er munur á neyslu og fíkn. Biggi hefur ekki bein tengsl við fíknisjúkdóminn en þekkir þó marga sem hafa farið út af sporinu og var í stjórn Samhjálpar. 

„Ég er mjög nálægt samfélaginu í allri sinni mynd, hjá einhverjum lögreglumanni kemur áhuginn þannig að hann fær gífurlegan áhuga á að vinna í fíknó en mitt svið var út frá félagslega þættinum, þar springur minn hugur út.“

Biggi hefur unnið í tilraunaverkefni með Hafnarfjarðarbæ og hefur þá sýn að hægt sé að bjarga þeim sem eru verst staddir í áhættuhegðun á unglingsaldri.

„Forvarnir þurfa að vera einstaklingsmiðaðri og kerfið þarf að vinna sem tannhjól en ekki stál í stál.“

Breyta þurfi því hvernig kerfið vinnur saman, skólar, barnavernd, lögreglan, félagslega kerfið.

„Tilraunaverkefnið var lagt af vegna peningaleysis en auðvitað snýst þetta um hvernig við ráðstöfum því fjármagni sem við höfum. Fíknó notar líklegast hærri fjárhæðir í bílaleigubíla en þetta verkefni kostaði.“

Neysla unglinga á Íslandi hefur breyst undanfarin ár, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt.

„Áfengisneysla var talin normal um fermingaraldur fyrir mörgum árum en það telst ekki eðlilegt í dag, áfengi er stórhættulegt fíkniefni. Vape kom allt í einu og við misstum eiginlega af því, nú er mikið aðgengi að efnum, mikið aðgengi að kannabis og sterku kannabis sem er ræktað hér. Ég hef samt miklar áhyggjur af spice-neyslu, það er ógeð, það er ástæða fyrir því að þetta er ódýrt.“

Við ræddum um viðbrögð foreldra og annarra sem ungmenni og aðrir leita til sem byrjaðir eru í neyslu hugbreytandi efna auk fordóma og skammar sem fylgir.

Við komumst ekki hjá því að ræða afglæpavæðingu neysluskammta, eins og gefur að skilja.

„Það þarf að skoða þetta heildrænt, við munum aldrei útrýma fíkniefnum. Við finnum ekkert samfélag í sögu mannsins sem ekki hefur hugbreytandi efni.“

Umræðan þurfi að vera málefnaleg og byrja þurfi samtalið.

Biggi veit hvað hann syngur, hefur skýra sýn og er stórhuga hvað varðar forvarnir og vinnu fyrir þá sem sýna áhættuhegðun og þróað hafa fíknisjúkdóm.

Þú getur hlustað á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál