Anna Mjöll giftir sig í þriðja sinn

Anna Mjöll Ólafsdóttir og Patrick Leonard.
Anna Mjöll Ólafsdóttir og Patrick Leonard. Ljósmynd/Instagram

Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir er búin að finna ástina á ný og hefur nú gengið í hjónaband. Hinn lukkulegi heitir Patrick Leonard og er bandarískur lagahöfundur. 

Þetta er þriðja hjónaband Önnu Mjallar en árið 2011 gekk hún í hjónaband með Cal Worthington sem vakti heimsathygli vegna aldursmunar á parinu. Hann var 91 árs þegar þau gengu í hjónaband og hún um fertugt. Worthington var þekktur í heimalandi sínu en hann starfaði lengst af sem bílasali og auglýsti bílana sem hann var að selja á eftirtektarverðan hátt. 

Eftir að upp úr hjónabandi Önnu Mjallar og Worthington slitnaði kynntist hún öðrum manni, söngvaranum Luca Ellis. Þau gengu í hjónaband í Árbæjarkirkju 8. febrúar 2013 en þau skildu 2014. 

Nú hefur hamingjan bankað upp á á nýjan leik og eins og sjá á myndinni sem þú birtu á Instagram er ástin í forgrunni. 

View this post on Instagram

Married! To the most wonderful man in the world, Patrick Leonard ❤️ #patrickleonard

A post shared by Anna Mjöll (@annamjollofficial) on Aug 8, 2019 at 8:04pm PDT



Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur búið í Bandaríkjunum í um þrjá …
Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur búið í Bandaríkjunum í um þrjá áratugi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál