Beckham póstar mynd af Daníel Darra

Viktoría Beckham póstaði mynd af syni Björgólfs Thors og Kristínar …
Viktoría Beckham póstaði mynd af syni Björgólfs Thors og Kristínar Ólafsdóttur á Instagram.

Viktoría Beckham birti mynd af syni Björgólfs Thors Björgólfssonar og Kristínar Ólafsdóttur á Instagram. Þar eru drengirnir tveir, sonur hennar og Daníel Darri, að drekka eplasafa úr vínglösum á fæti við sundlaugarbakka. 

Daníel Darri Björgólfsson og Cruz Beckham hafa verið vinir um nokkurt skeið og árið 2016 kom Beckham-fjölskyldan til Íslands í heimsókn til Björgólfs og Kristínar. Þau lentu á einkaþotu sinni á Reykjavíkurflugvelli og fór heimsókn þeirra ekki fram hjá neinum. 

Þessi mynd sem frú Beckham birtir á Instagram-síðunni sinni í dag er líklega ekki tekin í Reykjavík því hér á landi mokast haustlægðirnar yfir landið. Á myndinni er nefnilega sól og blíða, pálmatré, sundlaug, sundföt og létt stemning. 

Two little old men! 😂😂 @cruzbeckham @danieldarri55 #fizzyapplejuice #drinksatsunset #happyhour

A post shared by Victoria Beckham (@victoriabeckham) on Oct 18, 2017 at 8:15am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál