Ásdís Rán lætur ekki alvarlegt slys sem hún lenti í fyrir skömmu stoppa sig. En hún hefur meðal annars eytt sumrinu í Búlgaríu.
Ásdís Rán, sem tvíbraut mjaðmagrindina, rifbein og bein í vinstri hönd þegar hún datt aftur fyrir sig í stiga ákvað eyða tímanum sem hún er að jafna sig í sólinni frekar en uppi í sófa á Íslandi.
Ísdrottningin segir að sólin og sandurinn við Svartahafið hafi haft góð áhrif á sig. En hún er byrjuð að ganga og bjarga sér í flestöllu. „Það er ennþá svolítið langt í land að fullur bati náist,“ viðurkennir Ásdís Rán.
Á meðan Ádís Rán var í Búlgaríu tók hún rassasjálfsmynd af sér sem fór beint í búlgörsku slúðurpressuna. Það er því auðséð að Ásdís Rán er hvergi af baki dottinn þrátt fyrir slysið.
Með Ásdísi til halds og trausts í ferðinni var móðir hennar en Ásdís segir að hún hefði ekki getað bjargað sér án hennar. Elsti sonur Ásdísar, Róbert, varð tvítugur í sumar og skellti hann sér út til fjölskyldu sinnar og hélt upp á stórafmælið.
Ásdís Rán er bjartsýn á framtíðina en það eru sjö vikur síðan að hún lenti í slysinu. Hún fer að byrja í endurhæfingu og vonast til þess að geta látið sjá sig í ræktinni fljótlega. „Þetta er allt orðið miklu auðveldara,“ segir Ásdís Rán að lokum. Hægt er að fylgjast með ævintýrum Ásdísar á Instagram og snapchat en hún er á Snapchat sem icequeensnap.