Selma og Elmar eru nýtt par

Elmar Gilbertsson og Selma Björnsdóttir geisluðu í fertugsafmæli Selmu sem …
Elmar Gilbertsson og Selma Björnsdóttir geisluðu í fertugsafmæli Selmu sem hún hélt síðasta laugardag ásamt Björk Eiðsdóttur vinkonu sinni. Ljósmynd/Birna Björnsdóttir

Leikstjórinn og söngvarinn Selma Björnsdóttir og tenórinn Elmar Gilbertsson, sem sló svo eftirminnilega í gegn í Ragnheiði, eru kærustupar. Parið kynntist á vordögum en hann er búsettur í Hollandi og kom hingað til lands sérstaklega til þess að syngja í óperunni sem sett var upp í Hörpu af Íslensku óperunni. Óperan Ragnheiður er eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson. Annars starfar hann mest í Evrópu og hefur sungið mikið í Frakklandi, Hollandi, Bretlandi og víðar.

Á laugardaginn var hélt Selma upp á fertugsafmælið sitt ásamt vinkonu sinni, Björk Eiðsdóttur, ritstjóra MAN. Að sjálfsögðu kom Elmar til landsins til þess að taka þátt í gleðinni með sinni heittelskuðu.

Selma Björnsdóttir og Björk Eiðsdóttir hafa sama smekk og þess …
Selma Björnsdóttir og Björk Eiðsdóttir hafa sama smekk og þess vegna kom það engum á óvart að þær væru eins klæddar í afmælinu – báðar í kjólum frá Andreu. Eva Björk Ægisdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál