Þessi stjörnumerki munu upplifa mikla ástríðu 2024

Það er hiti í árinu.
Það er hiti í árinu. Ljósmynd/Unsplash

Enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér og það er ómögulegt að vita hvað árið hefur upp á að bjóða. Flest erum við þó forvitin og fylgjumst því með stjörnuspám. Við krossum fingur og vonum að árið okkar einkennist af rómantík, losta, ást og lystisemdum holdsins. 

Samkvæmt óformlegri könnun sem stefnumótasíðan Match gerði nýverið þá eru þetta þau fjögur stjörnumerki sem munu eiga ár uppfullt af ástríðu og kynlífi. 

Vatnsberinn (20. janúar - 18. febrúar)

Vatnsberar hafa mjög víðtækan skilning á kynlífi og eru mjög opnir fyrir því að prófa nýja hluti. 

Hrúturinn (21. mars - 19. apríl)

Hrútar elska kynlíf. Þeir eru ákafir og ófeimnir við að deila löngunum sínum. 

Meyjan (23. ágúst - 22. september) 

Meyjur vilja stunda ástríðufullt kynlíf en upplifa mikla nánd og rómantík. 

Steingeitin (22. desember - 19. janúar) 

Steingeitin vill sleppa sér í svefnherberginu en hún vill einnig tæla maka sinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál