Sigríður og Baldur endurnýjuðu brúðkaupsheitin

Sigríður Hrund Pétursdóttir og Baldur Ingvarsson við Öxarárfoss ásamt sr. …
Sigríður Hrund Pétursdóttir og Baldur Ingvarsson við Öxarárfoss ásamt sr. Jónu Hrönn Bolladóttur. Ljósmynd/Silla Páls

Gleðin var í hávegum höfð síðastliðinn föstudag þegar Sigríður Hrund Pétursdóttir, fjárfestir og fyrrverandi formaður FKA, og Baldur Ingvarsson húsasmíðameistari buðu til veislu á veitingastaðnum Flóru í Grasagarðinum í Reykjavík. 

Tilefnið var 20 ára endurnýjun brúðkaupsheita þeirra og bar veislan heitið Lifi lífið, ljósin og ástin og setti fram lífshlaup þeirra hjóna til heiðurs. 

Veislustýra og listrænn skipuleggjandi var Svanlaug Jóhannsdóttir listakona og voru fjölbreytt sýningaratriði borin fram til að búa til skynjunarferðalag fyrir gestina. Sigríður Soffía Níelsdóttir listakona var með gjörning ásamt Ásu Kollu DJ og listasýning varpaði ljósi á nokkur helstu viðfangsefni þeirra hjóna í gegnum tíðina.

Gleðin hjá hjónunum hélt síðan áfram daginn eftir með nánustu vinum og fjölskyldu þar sem vígsla fór fram við Öxarárfoss af hendi sr. Jónu Hrannar Bolladóttur. Brúðkaupsgestir fengu svo eftirmiðdagsverð á veitingastaðnum Hvönn í Skálholti og að lokum var haldin veisla fram á nótt á Hótel Geysi við mikinn fögnuð viðstaddra. 

Fanny Lára Hjartardóttir, Tolli Jóns, Svanlaug Jóhannsdóttir, brúðhjónin, Einar Símonarson, …
Fanny Lára Hjartardóttir, Tolli Jóns, Svanlaug Jóhannsdóttir, brúðhjónin, Einar Símonarson, Sigrún Kristjánsdóttir, Viktor Ólafsson og Styrmir Snær Baldursson. Ljósmynd/Silla Páls
Jónína Valdimarsdóttir, Guðrún Elín Ingvarsdóttir, Sigríður Hrund og Sigríður K. …
Jónína Valdimarsdóttir, Guðrún Elín Ingvarsdóttir, Sigríður Hrund og Sigríður K. Valdimarsdóttir. Ljósmynd/Silla Páls
Sigríður Soffía Níelsdóttir.
Sigríður Soffía Níelsdóttir. Ljósmynd/Silla Páls
Tryggvi Þórhallsson og Sólborg Lilja Steinþórsdóttir.
Tryggvi Þórhallsson og Sólborg Lilja Steinþórsdóttir. Ljósmynd/Silla Páls
Svanlaug Jóhannsdóttir og Daði Hafþórsson.
Svanlaug Jóhannsdóttir og Daði Hafþórsson. Ljósmynd/Silla Páls
Svanfríður Ingadóttir og Sigríður Björg Einarsdóttir.
Svanfríður Ingadóttir og Sigríður Björg Einarsdóttir. Ljósmynd/Silla Páls
Það var mikil stemning í Flóru.
Það var mikil stemning í Flóru. Ljósmynd/Silla Páls
Solveig Jan og Irenijus Janauskas.
Solveig Jan og Irenijus Janauskas. Ljósmynd/Silla Páls
Snæfríður Ísold Baldursdóttir.
Snæfríður Ísold Baldursdóttir. Ljósmynd/Silla Páls
Skynjunarferðalag.
Skynjunarferðalag. Ljósmynd/Silla Páls
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál