Konur þurfa ekki að klæðast buxum til þess það sé hlustað á þær mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney er skýrt dæmi um það. Clooney er þekkt fyrir kvenlegan fatastíl og er litval hennar einnig athyglisvert.
Clooney er ekkert að blanda saman of mörgum litum og klæðist hún gjarnan sterkum og áberandi litum sem kallast á við dökkt og fallegt hár hennar. Oftar en ekki lætur hún það duga að klæðast einlitum fötum.
Hún var mynduð í lok september í vinnunni í fallegum einlitum rauðum kjól. Einlitu fötin fá ekki bara að ráða í vinnunni þar sem hún mætti til að mynda í gulum kjól með gulan hatt í konunglegt brúðkaup í maí.