Eliza Reid keypti jakkann í verslun Rauða krossins

Forsetahjónin voru hress á Grímunni í gær eins og þessi …
Forsetahjónin voru hress á Grímunni í gær eins og þessi mynd sýnir. Ljósmynd/Facebook

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og eiginkona hans Eliza Reid mættu á Grímuna í gær. Forsetahjónin voru hress og skemmtileg að vanda. Elísa Reid þótti bera af í einstaklega fallegum fatnaði eins og henni er einni lagið.

Hún var í stígvélum frá Halldóru og í buxum sem hún hafði keypt í Kanada. Margir tóku eftir bleika hálsmeninu hennar sem er íslensk hönnun eftir Toggu sem hún festi kaup á í Ráðhúsi Reykjavíkur á sýningunni Handverk og hönnun. Ljósa bolinn sem hún er í fékk hún í Sigurboganum.

Punkturinn yfir i-ið var svo fallegur bleikur jakki sem forsetafrúin keypti í verslun Rauða krossins. 

Smartland heldur áfram að fylgjast með klæðaburði forsetafrúarinnar sem er einstakur að svo mörgu leyti. Hvergi í heiminum höfum við heyrt af forsetafrú nota tímabilsfatnað á þennan hátt á sama tíma og hún heillar land og þjóð með framkomu sinni, útliti og fegurð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál