Reykjavík skartaði sínu fegursta þegar bókin Reykjavík – then & now kom út. Slegið var upp teiti við Þingholtsstræti í Reykjavík þar sem boðið var upp á girnilegar veitingar og góða stemningu.
Höfuðborg landsins hefur heldur betur breytt um svip á undangenginni öld og það er áhugavert að skoða þá breyttu ásýnd í myndum og máli. Í bókinni Reykjavík – then & now eru 70-100 ára gamlar myndir af völdum stöðum í borginni en einnig nýlegar ljósmyndir af sömu stöðum. Myndunum fylgir sögulegur fróðleikur um húsin, göturnar, borgarmyndina og mannlífið fyrr á tímum. Þarna eru sögur af gömlum svartholum, fálkahúsi konungs, horfnum grafreitum, fúlum læk, skautasvelli á Austurvelli, heyskap við Menntaskólann – og öllum glæsilegu timburhúsunum sem urðu eldi að bráð.
Bókin er gefin út á vegum Strætis ehf., en að útgáfunni standa: Leó Árnason útgefandi, Helga Guðrún Johnson, ritstjóri og textahöfundur, Inger Anna Aikman, þýðandi og textahöfundur, Björg Vigfúsdóttir ljósmyndari, Hákon Broder Lund drónamyndatökumaður og Karitas Pálsdóttir og Daníel Stefánsson, grafískir hönnuðir. Flestar gömlu myndanna voru fengnar úr söfnum Ljósmyndasafns Reykjavíkur og Ljósmyndasafns Þjóðminjasafnsins en stöku gamlar og nýjar myndir voru fengnar annars staðar frá.