Geggjuð hæð á Seltjarnarnesi

Bláir veggir og falleg húsgögn einkenna þetta glaða og sjarmerandi heimili á Seltjarnarnesi. Um er að ræða 178 fm sérhæð með bílskúr í þríbýli. 

Eldhúsið er opið inn í stofu en í því er hvít sprautulökkuð innrétting og gráar borðplötur. Sexhyrndar flísar búa til stemningu í eldhúsinu og þar er líka góð lýsing.

Þegar inn í stofu kemur tekur við ákaflega skemmtilegt rými þar sem Habitat-sófi í kubbum er úti á miðju gólfi. Hann brýtur upp rýmið og gerir það ennþá meira sjarmerandi. Falleg uppröðun á hlutum er sérlega áberandi á heimilinu. Þar er á ferð mikil tilfinning fyrir rými og hvernig er hægt að fá sem mest út úr því. 

Af fasteignavef mbl.is: Tjarnarból 17

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál