Pottaplöntur hafa verið ákaflega vinsælar inni á heimilum alls staðar í heiminum síðustu misseri. Hér er búinn til sérstakur veggur í stofunni fyrir pottaplönturnar og er útkoman skemmtileg.
Þessa góðu hugmynd fékk arkitektinn David Bobilla þegar hann hannaði þessa fallegu, litlu en vel skipulögðu íbúð í Medellín í Kólumbíu. Það er ekki bara blómaveggurinn sem setur svip á íbúðina heldur líka stóri viðarveggurinn sem skapar hinn eina og sanna „wow-factor“ eins og þeir segja þarna í Ameríku.