Hannaði húsgögn fyrir Björk

Hér má sjá húsgögnin sem Klaus Haapaniemi hannaði fyrir sumarbústað …
Hér má sjá húsgögnin sem Klaus Haapaniemi hannaði fyrir sumarbústað Bjarkar. Ljósmynd/Lokal Helsinki

Björk Guðmundsdóttir söngvari valdi listamanninn Klaus Haapaniemi til þess að hanna húsgögn í sumarbústað sinn. Vefurinn AD greinir frá þessu. Til þess að fanga stemninguna fór Haapaniemi í sumarbústað Bjarkar, sem er við Þingvallavatn, til að sækja innblástur í verkið. 

Eins og sést á myndinni hefur ákaflega vel tekist til og eru bumblurnar frumlegar og heillandi. Haapaniemi heillaðist af eldfjalla-landslaginu sem ulykur bústaðinn. Hann er þekktur fyrir veggfóður sem þykir ansi flott. Fyrirtæki Haapaniemi hannar ekki bara veggfóður heldur lífsstílsvörur af ýmsum gerðum eins og slæður, púða, buddur og fleira. 

Eins og sjá má á myndbandinu er hönnuðurinn ansi fær í að blanda saman litum og búa til heillandi stemningu. 

Björk Guðmundsdóttir.
Björk Guðmundsdóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Guðdómlegt veggfóður sem hægt er að panta á heimasíðu hönnuðarins.
Guðdómlegt veggfóður sem hægt er að panta á heimasíðu hönnuðarins.
Hér er svart veggfóður með munstri.
Hér er svart veggfóður með munstri.
Hér mætast grænn og svartur í bland við bleikan og …
Hér mætast grænn og svartur í bland við bleikan og fjólubláan lit í veggfóðri.
Slæða eftir Klaus Haapaniemi.
Slæða eftir Klaus Haapaniemi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál