Ákveðin starfsmannavelta er heilbrigð en of mikil skapar rof

Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Háskóla Íslands.
Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Háskóla Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þá eru kosningar afstaðnar, þrátt fyrir að ekki sé alveg ljóst hvort talningar muni fara fram fram að jólum. Ég hef að sjálfsögðu mjög gaman af kosningabaráttu, kjöri og pólitískum umræðum enda stjórnmálafræðingur. Oft finnst mér vanta upp á áhuga og umræðu um forystu en það er eingöngu vegna þess að það er mitt fræðasvið. Það sem manni sjálfum finnst merkilegt er ekki alltaf það sem öðrum finnst merkiegt, sem betur fer er fjölbreytni í mannlífinu,“ segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir í sínum nýjasta pistli á Smartlandi: 

Forysta snýst um vald og hverjir gegna forystu og hvernig viðkomandi gera það hefur heilmikið að segja um völd í samfélaginu. Nú þegar Angela Merkel stígur til hliðar bíður flokkur hennar afhroð. þegar mjög sterkur leiðtogi stígur til hliðar þarf að hafa farið fram ferli þar sem væntanlegir leiðtogar eru undirbúnir en slíkt gleymist ansi oft. Sáum það þegar Thatcher fór frá og Churchill, svo nefnd séu nokkur dæmi. Forysta er bæði list og vísindi og það er munur á forystu í opinberum störfum og á almennum markaði.

Ég hafði gaman af því að hlusta á umræður um „roskna“ þingmanninn sem er sjötíu og tveggja ára. Biden var að taka við einu af stærstu forystuembættum heimsins og hann er 78 ára, Nancy Pelosi er 81 árs en hún hefur gegnt forystustörfum í bandaríska þinginu. Elísabet drotting Breta er 95 ára. Flestir þingmenn í Bretlandi eru á sextugsaldri, í Danmörku er meðalaldurinn um 47 ár og er Marianne Bruus Jelved elst eða 75 ára. Í Svíþjóð er meðalaldurinn um 45 ár og er Barbro Westerholmel elst, 85 ára. Í Þýskalandi var meðalaldur þingmanna fyrir kosningar 49,7 ár en í Frakklandi er hann 62,8 ár.

Fjölbreytni snýst ekki bara um kyn, kynþætti og kynhneigð heldur líka um aldur. Í framtíðarfræðunum er því haldið fram að hinir rosknu muni taka við völdum og hinir yngri muni ekki hafa aðgang því flestir kjósendur núna eru á miðjum aldri víða um heim og þeir eldast. Líklega verða fréttir um „roskna“ þingmenn ekki fréttnæmar eftir áratug nema þeir séu á níræðisaldri. 

Fjölbreytni í mannlífinu verður að endurspeglast á hinu háa Alþingi. Ef vinnustaður hefði sömu starfsmannaveltu og flokkar á Alþingi þá yrðu fengnir margir sérfræðingar til að ráða í það. Ákveðin starfsmannavelta er heilbrigð en of mikil skapar rof í þekkingu og reynslu, sem er erfitt.

Ég óska öllum þingmönnum, rosknum, ungum og miðaldra, til hamingju og vona að þeir hafi mestan áhuga á að vinna landi og þjóð gagn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál