Ef ykkur langar í rosalega góðan og einfaldan pastarétt og rifja upp nostalgíuna hans Jóa Fel í ítölsku matargerðinni þá er þetta rétturinn fyrir ykkur. Andrea Gunnarsdóttir áhugamanneskja um mat og matargerð sem heldur úti uppskriftasíðunni Andrea Gunnars er dolfallin aðdáandi Jóa Fel þegar kemur að pastaréttunum hans.
„Þegar bakaríin hans Jóa Fel voru og hétu voru til staðar fór ég oft þangað í hádeginu og fékk mér skinkupasta. Mér þótti, og þykir enn, það alveg dásamlega gott og ég syrgi bakaríin hans mikið, aðallega vegna þessa réttar sem ég fæ enn reglulega löngun í. Ég reyndi að finna uppskriftina með því að gúgla á veraldarvefnum en fann aldrei neina uppskrift sem mér fannst komast nógu nálægt hans en ákvað að reyna að leika uppskriftina eftir tilfinningu og ég held hreinlega að mér hafi tekist ætlunarverkið nokkuð vel. Rétturinn minn bragðast alveg eins og skinkupastað hans Jóa Fel, að minnsta kosti eins og ég man eftir því,“ segir Andrea. Nú er bara að prófa og í framhaldinu fá Jóa Fel til ljóstra upp, uppskriftinni að þessum syndsamlega góða skinkupastarétt sem margir sakna.
Skinkupasta eins og hjá Jóa Fel
Fyrir 6
- 1 rauð paprika
- 1 græn paprika
- 250 g sveppir
- 250 g skinka
- 1 box sveppasmurostur (300 g)
- 150 g beikonsmurostur
- 150 g rjómaostur
- 300 ml kjúklingasoð
- 175 ml rjómi
- 1 kjúklingateningur
- 1 grænmetisteningur
- Nýmulinn svartur pipar
- Smjör til steikingar
- 500 g pasta
Aðferð:
- Sneiðið sveppina, skerið paprikur í teninga og skerið skinkuna í bita.
- Steikið sveppina upp úr vel af smjöri, þar til þeir hafa minnkað aðeins í umfangi og safi farinn að koma úr þeim.
- Bætið þá skinkunni á pönnuna og steikið áfram í 2-3 mínútur.
- Setjið næst paprikur á pönnuna og látið þær mýkjast aðeins.
- Bætið næst sveppasmurosti, beikonsmurosti og rjómaosti á pönnuna og hrærið öllu vel saman.
- Þegar osturinn er byrjaður að bráðna, bætið þá kjúklingasoðinu, rjóma og kjúklinga- og grænmetisteningum á pönnuna og látið suðuna koma upp.
- Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum í vel söltu vatni og látið rjómasósuna malla á pönnunni á lágum hita á meðan.
- Smakkið til með nýmuldum pipar.
- Þykkið sósuna með maizenamjöli ef ykkur finnst hún of þunn, ég vil hafa hana vel þykka, þá hjúpar hún pastað svo vel.
- Þegar pastað er tilbúið, bætið því þá á pönnuna og látið allt malla saman í 2-3 mínútur.
- Berið fram með góðu brauði eftir smekk og ástríðu.