Lífið er íslenskur saltfiskur fyrir spænska kokkanema

Þau urðu hlutskörpust að þessu sinni: Ramón Arias í 2. …
Þau urðu hlutskörpust að þessu sinni: Ramón Arias í 2. sæti frá Sevilla, Marta Oti í 1. sæti frá Barcelona, Rebeca Gutiérrez í 3. sæti frá Salamanca. Ljósmynd/Íslandstofa

Þann 20. mars síðastliðinn fór fram árleg keppni milli matreiðslunema þar sem færasti saltfiskkokkur Spánar var valinn í Mérida á Spáni. Þetta er í þriðja skipti sem þessi keppni fer fram, en í þetta sinn tóku 18 skólar þátt, frá öllum hornum Spánar, eftir undankeppni í hverjum og einum þeirra.

Góð kynning á íslenskum saltfiski

Árlega taka því hátt í 200 nemar þátt í þessum keppnum á Spáni, auk allra hinna sem fylgjast með. Þannig má ætla að á hverju ári hafi stór hluti nýútskrifaðra kokka fengið góða kynningu á íslenskum saltfiski! Hann er enda uppistaðan í mörgum vinsælum réttum á Spáni, okkar stærsta saltfiskmarkaði. Keppnin er hluti af markaðsverkefninu „Seafood from Iceland” sem Íslandsstofa hefur umsjón með. Sambærilegar keppnir fara árlega fram í Portúgal og á Ítalíu, hinum stóru saltfisklöndunum.

Draumaferðlag til Íslands í verðlaun

Hlutskörpust þetta árið var kokkaneminn Marta Oti frá ESHOB Barcelona og fær hún í verðlaun draumaferðalag til Íslands. Mikil keppnis-og sköpunargleði einkenndi framlag nemanna, sem eru flestir á aldrinum 18-22 ára og að stíga sín fyrstu skref á þessum vettvangi. Myndirnar tala sínu máli hér, einnig er hægt að fylgjast með verkefninu á Instagram.

Hér er á ferðinni sigurréttur Mörtu Oti.
Hér er á ferðinni sigurréttur Mörtu Oti. Ljósmynd/Íslandsstofa
Kristinn Björnsson frá Íslandsstofu, Cristina Jolonch frá La Vanguardia, Toño …
Kristinn Björnsson frá Íslandsstofu, Cristina Jolonch frá La Vanguardia, Toño Pérez sem er með þrjár Michelin-stjörnur frá veitingastaðnum Atrio Restaurante, Diego Chavero, sigurvegari keppninnar árið 2023, Magnús Jónsson frá Iceland Seafood ásamt sigurvegaranum Marta Oti frá Barcelona. Ljósmynd/Íslandsstofa
Sigurvegarinn Marta Oti frá Barcelona hlaut draumaferðlag til Íslands í …
Sigurvegarinn Marta Oti frá Barcelona hlaut draumaferðlag til Íslands í verðlaun. Ljósmynd/Íslandsstofa
18 skólar tóku þátt að þessu sinni.
18 skólar tóku þátt að þessu sinni. Ljósmynd/Íslandsstofa
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert