Draumóramaðurinn og hugsuðurinn í forgrunni

Hinn öri Snabbi sem dreymir um frægð og frama og …
Hinn öri Snabbi sem dreymir um frægð og frama og hin spekingslega Bísamrotta sem þykir öll ólæti og ofgnótt tilgangslaus eru æ í forgrunni í nýju línu Mooin Arabia. Samsett mynd

Nýjustu meðlimir sígildu vörulínunnar frá Moomin Arabia nálgast lífið og tilveruna á ólíkan hátt. Hinn öra Snabba dreymir um frægð og frama, en hinni spekingslegu Bísamrottu þykir öll ólæti og ofgnótt tilgangslaus. Snabbi er kunnuglegt andlit í línunni, en hér birtist Bísamrottan í fyrsta sinn. Nýju vörurnar frá Moomin Arabia verða fáanlegar á heimsvísu frá með deginum í dag, 5. mars 2024.

Líkt og áður er saga bak við myndskreytingarnar og það einmitt það sem gerir þessa línu svo áhugaverða. Þegar drukkið er úr bollunum eða snætt á diskunum er hægt að detta inn í draumaheim múmínálfanna og lifa sig inn í sögurnar.

Nýja línan kemur með ferskan sumarblæ inn í eldhúsið.
Nýja línan kemur með ferskan sumarblæ inn í eldhúsið. Ljósmynd/Moomin Arabia

Síðustu sígildu myndskreytingarnar eftir Tove Slotte

Báðar myndskreytingarnar af Snabba og Bísamrottu voru gerðar af Tove Slotte, sem settist í helgan stein árið 2022 eftir þrjátíu ár í starfi hjá Moomin Arabia. Myndskreytingarnar tvær eru þær síðustu í sígildu vörulínunni eftir þennan dáða hönnuð, en múmínaðdáendur munu fá að njóta myndskreytinga hennar í öðrum Moomin-vörulínum á komandi árum.

Hægt er að fara inn í draumaheim múmínálfanna meðan drukkið …
Hægt er að fara inn í draumaheim múmínálfanna meðan drukkið er úr fagurlega myndskreyttum bollunum. Ljósmynd/Moomin Arabia

Langþráð Bísamrottan er loksins hluti af vörulínunni

Hinn alvörugefni heimspekingur Bísamrottan er glæný persóna í sígildu línunni og á öllum Moomin Arabia-borðbúnaði. Múmínaðdáendur hafa beðið lengi eftir að sjá vörur skreyttar litla nagdýrinu með yfirvaraskeggið.

Bísamrottan birtist eingöngu í skáldsögum Tove Jansson Pípuhattur galdrakarlsins (útg. á sænsku árið 1948) og Halastjarnan (1946), hvorki síðar né í myndasögunum. Þess í stað var vinsældum sögupersónunnar haldið uppi með teiknimyndum í sjónvarpi. Nú nýlegast í teiknimyndaþáttunum, Múmínálfarnir, sköpuðum af Gutsy Animations (2019-), en þar hefur sögupersónan hlotið talsverðan skjátíma.

Í sögum Jansson, birtist Bísamrottan sem ábúðarfullt gamalmenni sem líkar best að verja tíma sínum í friðsamlegu einrúmi og ró, lesa bækur og velta fyrir sér stórum spurningum um tilveruna. Hana má ekki trufla svo auðvelt sé og skoðanir hennar má gjarnan túlka sem tilvistarstefnulegar. Lífsspeki hennar er best lýst með orðum hennar úr Pípuhatti galdrakarlsins:

„Hve tilgangslaust það er að æða um í kjaftagangi, byggja hús og elda mat og sanka að sér veraldlegum eigum.“

Engu að síður, er enn þá sumt sem hreyfir við heimspekingnum. Þegar Bísamrottan fellur til jarðar úr uppáhalds bólinu sínu, hengirúmi í garði við múmínhúsið, fylgir því auðmýkjandi sæmdarskellur. Verandi nú þegar þreytt á eirðarleysinu í múmínhúsinu, flýr hún í strandhelli til þess að vera í einrúmi með hugsunum sínum.

Þessi atburðarás er sýnd á borðbúnaði Bísamrottunnar. Innihald speki hennar er afhjúpað með titlinum á bókinni í kjöltu hennar: „The Uselessness of Everything“ eða Tilgangsleysi alls.

Snabbi hefur fengið að njóta sín áður í vörulínunni en …
Snabbi hefur fengið að njóta sín áður í vörulínunni en loksins fær Bísamrottan að njóta sín. Ljósmynd/Moomin Arabia

 

Snabbakrús og diskar með nýrri sögu

Snabbi er kunnuglegt andlit í sígildu línunni og er í þriðja sinn sem hann birtist á borðbúnaði.

Ólíkt Bísamrottunni, nálgast Snabbi lífið með óþrjótandi áhugasemi. Hann er einn besti vinur Múmínsnáðans, eins og lítill bróðir, og tekur góðfúslega þátt í öllu sem múmínálfarnir taka sér fyrir hendur, þó ekki áfjáður í það sem gæti talist hættusamt.

Bísamrottan telur svo til allt vera tilgangslaust, en Snabbi er draumóramaður sem girnist allt sem telst verðmætt eða sem glóir. Hann er sífellt að leita nýrra leiða til þess að verða ríkur.

Í allra fyrstu myndasögu Jansson, Múmínsnáði (1954-1955), heimsækir fjöldinn allur ættingja og vina múmínhúsið svo að Múmínsnáði kemst ekki lengur fyrir undir sama þaki. Snabbi hjálpar vini sínum Múmínsnáða að verða ríkur svo hann geti byggt sitt eigið hús.

Snabbi finnur upp á æskuseyði sem hann byrjar að selja í Múmíndal. Öllum að óvörum breytast þeir sem drekka seyðið í andstæðu sína – litlir verða stórir, gamlar konur verða gamlir karlar.

Eins og sjá má á nýja borðbúnaðinum býður Snabbi skjaldböku upp á seyðið en hún breytist síðan í hraðlest. Á borðbúnaðinum má einnig sjá Snabba standa á ströndinni við sólsetur – þar sem hann að sjálfsögðu lætur sig dreyma um frægð og frama. Við hliðina á Snabba er lítil vera sem kallast Skuggi. Hann er hjálpleg vera sem, líkt og nafnið gefur til kynna, og eltir Snabba og Múmínsnáða út um allt.

Eins og áður sagði verða nýjar krúsir, diskar og skálar í sígildu línunni fáanlegar á heimsvísu frá og með deginum í dag, 5. mars 2024, hjá öllum söluaðilum Moomin Arabia á Íslandi.

Brúnir jarðlitatónar eru í nýju línunni sem eru einstaklega hlýir.
Brúnir jarðlitatónar eru í nýju línunni sem eru einstaklega hlýir. Ljósmynd/Moomin Arabia
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert