Brauðbollur með bökuðum Brie

Freistandi er að horfa á þetta girnilega fyllta ostabrauð sem …
Freistandi er að horfa á þetta girnilega fyllta ostabrauð sem fangar augað. Ljósmynd/Gígja

Þetta dásamlega ostafyllta brauð er syndsamlega gott og kemur úr smiðju Thelmu Þorbergsdóttur matgæðings sem hún gerði fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn. Hér eru settar saman dúnmjúkar brauðbollur og Dalaostur með ferskum kryddjurtum og öðru góðgæti sem passar einstaklega vel saman. Þessi skemmtilega framsetning hentar vel bæði hversdags eða til hátíðarbrigða, á hvaða veisluborð sem er. Upplagt er að útbúa þennan rétt fyrir þrettándagleðina eða fyrir næsta saumaklúbb svo fátt eitt sé nefnt.

Brauðbollur

40-45 litlar bollur

  • 3 ½ dl mjólk
  • 115 g smjör
  • 100 g sykur
  • 10 g ger
  • 110 ml heitt vatn
  • 3 stk. egg
  • 1 ½ tsk. salt
  • 700 g hveiti
  • 1 stk. egg (hrært og penslað yfir bollurnar)
  • Sjávarsalt ofan á bollur eftir smekk

Bakaður Brie

  • 1 stk. Dala Brie
  • 2 msk. ferskt rósmarín
  • 2 lúkur fersk steinselja
  • 4 stk. timian greinar
  • 1 tsk. ferskt óreganó eða krydd
  • 1 tsk. sjávarsalt
  • 130 ml ólífuolía
  • 2 msk. rauðvínsedik (vinegar)
  • Smá pipar eftir smekk

Til skrauts

  • Ferskar rósmaríngreinar
  • Granateplafræ
  • Eða það sem ykkur dettur í hug 

Aðferð:

  1. Hitið mjólkina við meðalháan hita þar til hún er alveg að fara að sjóða.
  2. Takið þá pottinn af hitanum og bætið smjöri og sykri saman við. Geymið þó 1 msk. af sykri til þess að blanda saman við gerið.
  3. Hrærið þar til smjörið hefur bráðnað alveg og sykurinn blandast vel saman við.
  4. Hitið vatn, passið þó að vatnið sé ekki sjóðandi heitt og hægt sé að dýfa fingri ofan í vatnið án óþæginda.
  5. Setjið gerið saman við ásamt 1 msk. af sykri og hrærið saman.
  6. Látið gerið standa í rúmar tíu mínútur eða þar til það er farið að freyða.
  7. Blandið gerblöndunni og mjólkurblöndunni saman í skál ásamt eggjum, salti og hveiti.
  8. Hrærið á litlum hraða þar til allt hefur blandast vel saman og deigið hefur myndað stóra þétta kúlu. Hnoðið deigið í hrærivélinni í rúmar fimm mínútur.
  9. Setjið deigið í skál með loki eða rökum klút yfir og látið standa í rúma klukkustund. Því lengur sem deigið stendur því betra.
  10. Þegar deigið hefur lyft sér þá þarf að hnoða það til þess að losa loft sem hefur myndast við hefingu.
  11. Skiptið deiginu niður og myndið litlar kúlur úr deiginu.
  12. Deigið ætti að duga í 40-45 litlar bollur.

Samsetning

  1. Setjið Dala Brie á bökunarplötu með smjörpappír.
  2. Raðið brauðbollunum hringinn í kringum ostinn. Gerið tvöfalda röð af brauðbollum, eða eins margar og þið viljið. Þær bollur sem ekki raðast í kringum ostinn má baka á auka plötu.
  3. Hrærið eitt egg vel í skál og penslið egginu yfir bollurnar.
  4. Stráið salti yfir bollurnar og örlítið af rósmarín.
  5. Gott er að leggja hreint viskastykki yfir bollurnar og láta það standa yfir í rúmar 15-30 mínútur áður en þið bakið þær.
  6. Áður en þið bakið ostinn og bollurnar þarf að blanda kryddblönduna sem bakast með ostinum.
  7. Saxið fersku kryddjurtirnar smátt niður og blandið saman við ólífuolíu og rauðvínsedik.
  8. Kryddið með salti og pipar og hrærið vel saman. Setjið helminginn af kryddblöndunni yfir ostinn.
  9. Hitið ofninn í 180°C hita og bakið bollurnar og ostinn í rúmar 20 mínútur eða þar til bollurnar eru orðnar fallega gylltar að lit.
  10. Þegar bollurnar eru tilbúnar er afganginum af kryddblöndunni helt yfir ostinn og hann hrærður saman við.
  11. Best að njóta á meðan osturinn og bollurnar eru heitar og góðar.
  12. Deigið má gera daginn áður og geyma inni í kæli eftir hefingu.
  13. Skreytið með fersku rósmarín og t.d. granateplum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert