Karamellu tiramisú sem bráðnar í munni

Dýrðleg karamellu tiramisú úr smiðju Guðrúnar Ýrar Eðvaldsdóttur hjá Döðlur …
Dýrðleg karamellu tiramisú úr smiðju Guðrúnar Ýrar Eðvaldsdóttur hjá Döðlur og smjör. Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Tiramisú er dásamlegur eftirréttur sem er léttur og sætur, fullkomin eftir þunga máltíð ef manni langar í smá sætt. Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir matarbloggari hjá Döðlur og smjör ákvað að ögra smá klassísku tiramisú og prófa að breyta því svolítið og bæta við það karamellusósu og Doré karamellusúkkulaði. „Ég get sagt ykkur það að útkoman var alveg dásamleg og ég mun gera þessa útgáfu aftur,“ segir Guðrún.

Hrifin af eftirréttum sem má græja deginum áður

Ég hélt mig þó við kaffi bleyttar kökur og sáldraði kakó yfir en ef fólk vill síður kaffi bragðið er ekkert mál að bleyta upp í kökunum með mjólk, þá verður það einnig barnvænna.“ Guðrún er mjög hrifin af eftirréttum sem er ekkert mál að græja deginum áður. Hvort sem það er tiramisú, súkkulaðimús, ostakaka eða marens og finnst það minnka stressið ef matarboð er fram undan. Þá er hægt að geyma eftirréttinn inn í ísskáp yfir nótt og bera hann fram daginn eftir.

Hér er kemur uppskriftin að nýjustu útfærslu Guðrúnar að tiramisú. Gott er að leyfa hráefnum eins og eggjum, rjóma og mascarpone ostinum að standa á borðinu og ná stofuhita áður en er farið að gera tiramisú, það hjálpar hráefnunum að blandast betur saman.

Augnakonfekt að horfa á dýrðina.
Augnakonfekt að horfa á dýrðina. Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Karamellu tiramisú

Fyrir 4-6

  • 100 ml sterkt kaffi
  • 2 egg
  • 80 g sykur
  • 250 ml rjómi
  • 100 g Doré karamellusúkkulaði frá Nóa Siríus
  • 200 g mascarpone ostur
  • 24 stk Lady fingers (1 pk.)
  • Karamellusósa (keypt eða uppskrift hér fyrir neðan)
  • 2-3 msk. kakó

Aðferð:

  1. Hellið upp á sterkt kaffi og leyfið að kólna lítillega 
  2. Setjið egg og sykur saman í hrærivélarskál og þeytið saman þangað til það er létt og ljóst, í u.þ.b. 3-4 mínútur.
  3. Þeytið þá rjómann í annarri skál og í þeirri þriðju bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni.
  4. Þegar súkkulaðið er bráðið, setjið hrærivélina af stað með eggjunum og sykri og blandið súkkulaðinu saman við.
  5. Passið að súkkulaðið hafi kólnað lítillega áður.
  6. Blandið þá súkkulaðiblöndunni varlega saman við rjómann.
  7. Notið síðan rjómaskálina og setjið mascarpone ostinn í og hrærið aðeins í honum, blandið þá smá af súkkulaði rjómablöndunni við ostinn og þegar hann hefur samlagast við blönduna, bætið öllu saman í eitt.

Samsetning

  1. Finnið til skál eða fat og sáldrið smá kakódufti í botninn (gott er að nota tesíu í verkið eða fínt sigti).
  2. Bleytið þá upp í lady fingers kökum í kaffinu, eina í einu og leggið í fatið.
  3. Drisslið karamellu yfir kökurnar u.þ.b. 2 msk .og sáldrið kakódufti yfir, setjið þá um helming af blöndunni yfir.
  4. Þá er það að endurtaka leikinn.
  5. Bleyta í kökunum og leggja yfir, karamella og kakóduft.
  6. Í lokin má setja hinn helminginn af blöndunni yfir eða setja í sprautupoka með stút og sprauta yfir til að fá skemmtilega áferð.
  7. Setjið í kæli og leyfið að hvíla í 8-24 klukkustundir.
  8. Áður en tiramisúið er borið fram sáldrið kakódufti yfir og bjóðið restina af karamellusósunni með, fyrir þá sem vilja meira með.

Karamellusósa

  • 200 g sykur
  • 50 ml vatn
  • 100 ml rjómi
  • 50 g smjör

Aðferð:

  1. Setjið sykur og vatn saman í pott á miðlungshita.
  2. Leyfið blöndunni að malla án þess að vera að hræra í henni þangað til að allur sykurinn er bráðinn, fylgist með þegar hún fær á sig gylltan lit.
  3. Þegar hún hefur fengið á sig lit er gott að slökkva undir og bæta rjómanum saman við og hræra á meðan. Þá er smjörinu blandað saman við og þá ætti karamellan að vera klár.
  4. Hellið í krukku sem hægt er að loka og leyfið að kólna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert