Ískaka með karamellu og pekanhnetum

Girnilega ístertan hennar Berglindar.
Girnilega ístertan hennar Berglindar. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Það er eitthvað svo hátíðlegt við að gera heimatilbúinn ís fyrir jólin. Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar hefur gert ófáa slíka í gegnum tíðina og finnst alltaf jafn gaman að bera ísinn fram eins og ísköku sem skorin er í sneiðar. Hér er hafrakexbotn sem smellpassar með karamellunni og góða ísnum úr smiðju Berglindar sem steinliggur um hátíðirnar.

Ómótstæðilega gott að njóta ístertu eins og þessarar um hátíðirnar.
Ómótstæðilega gott að njóta ístertu eins og þessarar um hátíðirnar. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Ískaka með karamellu og pekanhnetum

Fyrir 10-12

Hafrakexbotn

  • 250 g hafrakex
  • 100 g brætt smjör

Aðferð:

  1. Setjið bökunarpappír í botninn á um 20-22 cm smelluformi.
  2. Brytjið kexið gróft niður í blandara og myljið niður í honum þar til sandáferð er komin á kexið.
  3. Setjið kexmylsnuna í skál, hellið smjörinu yfir og blandið saman.
  4. Hellið í kökuformið, þjappið niður í botninn og upp um það bil hálfar hliðar, setjið í frysti á meðan þið útbúið karamelluna og fyllinguna.

Karamella með pekanhnetum

  • 120 g smjör
  • 80 g púðursykur
  • 2 msk. síróp
  • 1 tsk. vanilludropar
  • ¼ tsk. salt
  • 80 g pekanhnetur (saxaðar)

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið við meðalhita í potti og bætið þá púðursykri og sýrópi saman við.
  2. Náið suðunni upp og lækkið síðan aftur í meðalhita, leyfið aðeins að bubbla og hrærið í allan tímann þar til sykurinn er uppleystur.
  3. Takið þá af hellunni, bætið vanilludropum, salti og pekanhnetum saman við og leyfið blöndunni að ná stofuhita áður en þið blandið henni saman við ísinn í næsta skrefi.

Fylling og samsetning

  • 400 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 5 egg aðskilin
  • 60 g púðursykur
  • 40 g sykur
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 40 g karamellukurl
  • 20 g pekanhnetur

Aðferð:

  1. Þeytið rjómann og stífþeytið eggjahvíturnar og geymið til hliðar.
  2. Þeytið síðan saman eggjarauður, báðar tegundir af sykri og vanillusykur þar til blandan þykkist og verður ljós á litinn.
  3. Vefjið næst rjómanum varlega saman við með sleikju og þar á eftir stífþeyttu eggjahvítunum.
  4. Hellið ísblöndunni síðan í formið, ofan á kexbotninn í nokkrum skömmtum. Setjið smá, síðan smá karamellu óreglulega hér og þar og endurtakið þar til bæði ísblanda og karamella er búin.
  5. Sléttið aðeins úr toppnum og stráið karamellukurli og pekanhnetum yfir toppinn.
  6. Frystið í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt og losið þá úr smelluforminu og skerið í sneiðar.
  7. Berið fram á hátíðlegan hátt og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert