Mæðgin gerðu saman ketó klatta

Helga Gabríela bakaði ljúffenga ketó klatta með syninum á dögunum …
Helga Gabríela bakaði ljúffenga ketó klatta með syninum á dögunum og áttu mæðginin góða stund saman. Samsett mynd

Þessir ketó klattar eru hreint sælgæti að njóta og auk þess fullir af orku og næringu. Í uppskriftinni eru engir hafrar og ekkert hveiti, einungis hnetur og fræ í grunninn. Heiðurinn af uppskriftinni á Helga Gabríela Sigurðardóttir matreiðslumaður og þessa uppskrift gerði hún með syni sínum á dögunum. Mæðginin nutu stundarinnar í botn eins og sjá má á Instagraminu hennar Helgu Gabríelu.

Ketó klattar Helgu Gabríelu

  • 250 g lífrænar hnetur
  • 30 g graskersfræ
  • 30 g hampfræ
  • 30 g kókosflögur
  • 2 msk. möndlusmjör
  • 2 msk. hunang/kókossykur
  • 1 egg
  • 1 tsk. vanilla
  • 1/3 bolli þurrkuð trönuber eða dökkt súkkulaði

Aðferð:

  1. Byrjið á því að mylja hneturnar gróft niður í matvinnsluvél.
  2. Bætið við fræjum og kókosflögum saman við og blandað vel saman.
  3. Setjið síðan restin af hráefnunum saman við og hrærið vel saman við.
  4. Pressið síðan niður í form með smjörpappír undir.
  5. Bak við 180°C í um það bil 15 mínútur.
  6. Látið kólna og skerið niður í bita.
  7. Mjög gott að mylja líka klattana út á grísku jógúrtina og drissla með smá hráu hunangi.
  8. Best geymdir í lokuðu íláti inni í kæli.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert