Tíminn skiptir öllu máli sem gestgjafi

Það er gaman að bjóða vinum og fjölskyldu í mat …
Það er gaman að bjóða vinum og fjölskyldu í mat - njótum þess! mbl.is/

Það geta allir verið góðir gestgjafar í veislum, en hvað er það sem fullkomnar hina góðu samverustund með vinum og fjölskyldu? Hér eru nokkrir punktar sem auðvelt er að tileinka sér, en það er tíminn sem skiptir öllu máli.

  • Það tekur tíma að bjóða góðum vinum heim.
  • Það tekur tíma að fara út í búð og kaupa í matinn.
  • Það tekur tíma að elda.
  • Það tekur tíma að leggja á borð.
  • Það tekur tíma að setja blóm á borðið, og jafnvel tína þau sjálf út í garði.
  • Það tekur tíma að velja tónlist fyrir samveruna.
  • Það tekur tíma að sitja til borðs með þeim sem þér þykir vænt um.
  • Það tekur allt tíma – en er að sama skapi, algjörlega ómetanlegt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert