Ómótstæðilegur marengs með rabarbararjóma

Ljósmynd/Dana Gallagher - Martha Stewart

Það er erfitt að standast góðar kökur, og hvað þá krásir sem óma af sumri og sól í einum bita. Hér er marengskaka með rabarbararjóma og ferskum berjum. 

Ómótstæðilegur marengs með rabarbararjóma

Botn:

  • 4 1/2 eggjahvíta
  • 200 g sykur
  • 200 g möndlur, saxaðar

Rabarbararjómi

  • 300 g rabarbari
  • 160 g strásykur
  • 1 msk. kartöflumjöl
  • 1 vanillustöng
  • 1/2 l rjómi

Skraut

  • 500 g blönduð ber, t.d. bláber, hindber, jarðaber

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 175°C.
  2. Pískið eggjahvíturnar og sykur þar til alveg stíft.
  3. Veltið möndlunum saman við eggjahvíturnar.
  4. Setjið deigið í hringlaga form (26-28 cm), klædd bökunarpappír.
  5. Bakið í 20-25 mínútur og látið kólna.
  6. Skerið rabarbarann í 2 cm bita og dreifið þeim í ofnfast mót klætt bökunarpappír.
  7. Dreifið sykri, kartöflumjöli og vanillukornum yfir. Leggið vanillubelginn með (hann gefur gott bragð), og bakið rabarbarann í 20 mínútur. Látið kólna, takið vanillustöngina frá og hrærið rabarbarann að mauki.
  8. Pískið rjómann og blandið rabarbaranum saman við. Smyrjið rjómanum á möndlubotninn og skreytið með ferskum berjum
Rabarbari er æðislegur í hina ýmsu rétti og kökur.
Rabarbari er æðislegur í hina ýmsu rétti og kökur. mbl.is/Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert