Ný hönnun frá Normann Copenhagen vekur athygli

Ný vatnskarafla frá Normann Copenhagen vekur athygli fyrir sérstakt útlit.
Ný vatnskarafla frá Normann Copenhagen vekur athygli fyrir sérstakt útlit. Mbl.is/Normann Copenhagen

Hér erum við að sjá nýja karöflu frá Normann Copenhagen sem hefur vakið ómælda athygli, þá fyrir sérstaklega fyrir lögun sína.

Pipe Pitcher er hannað af hinum þekkta Simon Legald, sem sótti innblástur sinn í frárennslisrör utan á húsum víðsvegar um Kaupmannahafnarborg. Karaflan er einföld með þægilegu handfangi og sívala form sem gerir hana svona sérstaka. Í silfruðu háglans, verður hún enn glæstari fyrir vikið hvar sem hún lendir á borðum.

Mbl.is/Normann Copenhagen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka