Kjúklingasúpa sem bragðast unaðslega

Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Ég veit fátt betra en austurlenskan mat - þá ekki síst þegar kemur að súpum og ég græt enn lokun Asíu á Laugaveginum og súpuna þar.

Hér er hins vegar kominn verðugur arftaki en það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem bjó til þessa súpu sem inniheldur flest allt það sem ég elska (eins og kókosmjólk, chili, kóríander og kjúkling).

Berglind segist nota Tom Kha Gai-súpuduft frá TORO sem hún bæti aðeins við til að gera hana matarmeiri. „Dásamlegur sítrónugraskeimur í bland við kókos er frábær blanda og hátíð fyrir bragðlaukana. Það er svo margt sniðugt hægt að gera við pakkasúpur svo lengi sem hugmyndarflugið fær að ráða. Þessi súpa er ný inn á markaðinn og önnur sterk tómatsúpa sem heitir Amerikansk Spicy. Hún er meira með mexíkósku ívafi en klárlega kostur sem þarf að prófa líka með einhverju skemmtilegu twisti."

Tom Kha Gai-súpa

  • 2 x pakki af Tom Kha Gai-súpu frá TORO
  • 1 pk úrbeinuð kjúklingalæri (um 8 stykki)
  • 1 x laukur
  • 1 x rautt chilli (+ meira til skrauts)
  • 1 dós kókosmjólk (400 ml)
  • 800 ml vatn
  • 300 ml rjómi
  • 150 g hrísgrjónanúðlur
  • Bezt á kjúklinginn krydd
  • Kóríander, lime og chili á toppinn
  • Ólífuolía til steikingar

Aðferð:

  1. Steikið kjúklingalærin upp úr ólífuolíu í nokkrar mínútur á hvorri hlið þar til þau eru elduð í gegn, kryddið á báðum hliðum með Bezt á kjúklinginn kryddi. Takið úr pottinum og leggið til hliðar.
  2. Bætið við ólífuolíu í pottinn, skerið lauk og chili niður og steikið þar til mýkist.
  3. Bætið þá kókosmjólk, vatni og rjóma í pottinn ásamt Tom Kha Gai-súpuduftinu. Náið upp suðu og lækkið þá vel niður og leyfið að malla í nokkrar mínútur og hrærið reglulega í á meðan.
  4. Á meðan má sjóða hrísgrjónanúðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka, láta vatnið renna vel af þeim og bæta þeim síðan út í pottinn í lokin ásamt niðurskornum kjúklingalærunum.
  5. Berið fram með kóríander, fersku chili og lime-sneiðum.
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert