Bakan sem þarf ekki að baka

Dásamleg baka sem þarf ekki að baka - alveg að …
Dásamleg baka sem þarf ekki að baka - alveg að okkar skapi. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Súkkulaði- og vanillubaka sem tekur ekki allan daginn að græja, að sögn Snorra Guðmundssonar sem á heiðurinn af þessum girnilega desert. Hér er bakan toppuð með pistasíuhnetum, berjum og smá hunangi, en í raun má nota allt það sem hugurinn girnist. Snorri mælir með að nota lausbotna form fyrir þessa uppskrift.

Bakan sem þarf ekki að baka

  • 270 g súkkulaðikremkex, t.d. Crawstons
  • 85 g ósaltað smjör
  • 330 ml nýmjólk
  • 1 pakki Royal-vanillubúðingur
  • bláber
  • pistasíuhnetur
  • hunang

Aðferð:

  1. Setjið kexið í matvinnsluvél og látið vélina ganga þar til kexið er mjög fínt saxað. Færið það þá í skál.
  2. Bræðið smjörið í örbylgjuofni og blandið því vandlega saman við kexið.
  3. Þrýstið kexblöndunni þétt í 20 cm bökuform með lausum botni. Gott er að nota t.d. glas eða bolla með flötum botni til að þrýsta blöndunni að köntunum og smjörhníf til að þrýsta blöndunni niður á móti til þess að fá sem sléttastan kannt. Setjið inn í ísskáp og kælið í 30 mín.
  4. Hrærið búðinginn saman við 330 ml af nýmjólk og bíðið í stutta stund. Búðingurinn verður loftmikill þegar hann byrjar að setjast en það þarf því að hræra loftið úr honum áður en honum er dreift á bökuna.
  5. Geymið bökuna í kæli en takið hana út um 30 mín. áður en það á að bera hana fram svo það sé auðveldara að ná henni úr forminu.
  6. Saxið pistasíuhnetur og dreifið yfir bökuna ásamt ferskum jarðarberjum og hunangi rétt áður en hún er borin fram.
mbl.is/Snorri Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert