Syndsamlega gott sunnudagslamb með geggjuðu meðlæti

Er sunnudagshefðin lambalæri og kartöflur á gamla vísu eða er landinn dottinn úr hefðinni? Sama hvort það er hefð eður ei, við erum alltaf til í safaríkt lambalæri sem þetta með grænmeti, kartöflum og nóg af hvítlauk.

Sunnudagslamb með grænmetisgotti

  • Lambalæri
  • 10 hvítlauksrif
  • 16 rósmaríngreinar
  • ½ rauður chili
  • 20 litlar kartöflur
  • 1 salat laukur
  • 2 stórar gulrætur
  • ½ fennika
  • Flögusalt
  • Pipar
  • Ólífuolía

Aðferð:

  1. Leggið lambalærið í stórt eldfast fat eða djúpa ofnskúffu klætt bökunarpappír.
  2. Skerið rákir í kjötið, nægilega djúpar til að koma hvítlauk, rósmarín og chili þar fyrir.
  3. Skerið hvítlauksrifin til helminga og chili í skífur. Stingið hvítlauk, rósmarín og chili ofan í rákirnar á kjötinu. Geymið samt eitthvað til að leggja við hlið kjötsins.
  4. Hitið ofninn í 200°.
  5. Hreinsið kartöflurnar, skerið laukinn í báta og gulræturnar í þykk strá. Skerið fenniku í litla munnbita. Dreifið nú kartöflum, lauk, gulrótum, fenniku, hvítlauk, rósmarín og chili í kringum kjötið.
  6. Saltið og piprið kjöt og grænmeti og hellið ólífuolíu yfir allt saman.
  7. Eldið í 1½ tíma eða þar til kjötið er tilbúið.
  8. Leyfið kjötinu aðeins að standa áður en það er borið fram.  
Lambalæri með rósmarín, hvítlauk og grænmeti – allt sem þú …
Lambalæri með rósmarín, hvítlauk og grænmeti – allt sem þú þarft á einni helgi. mbl.is/Jesper Glyrskov
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert