Pottréttur sem getur ekki klikkað

mbl.is/Einn, tveir og elda

Haustið er hin fullkomna árstíð fyrir góða og matarmikla pottrétti. Þessi hér er það sem kallast algjör negla enda er hann í senn bragðgóður, vinsæll, hollur og matarmikill. Hann kemur úr smiðju Einn, tveir og elda og ætti því ekki að klikka.  

Korma-lambapottréttur

Fyrir tvo

  • 400 gr. lambagúllas
  • 165 gr. kókosmjólk 
  • 2 msk. Patak‘s Korma paste 
  • 1 stk. laukur 
  • 1 kjúklingakraftsteningur 
  • 100 gr. sveppir 
  • 100 gr. spínat 
  • 100 gr. hrísgrjón (hægt að skipta út fyrir meira spínat eða blómkálsgrjón til að gera réttinn LKL-vænan)

Aðferð:

1. Skerið laukinn í bita og hitið 100 ml af vatni í potti ásamt kjúklingakraftinum.

2. Hitið 2 msk. af ólífuolíu á pönnu og mýkið laukinn á pönnunni í 1-2 mínútur. Bætið þá kjötinu út á og steikið í 5 mínútur til viðbótar.

3. Bætið sveppum og korma maukinu út á pönnuna og steikið í 1 mínútu, bætið þá kókosmjólkinni og soðinu út á, lækkið hitann niður í miðlungshita og leyfið þessu að malla í 20-30 mínútur.

4. Hitið 700 ml af vatni í potti að suðu ásamt 1 tsk. af salti. Sjóðið hrísgrjónin í um það bil 15 mínútur eða þar til fullsoðin.

5. Berið lambapottréttinn fram á hrísgrjónabeði með spínatinu, njótið vel!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert