Tryllt helgarbomba með eplum

Helgarbomban er rosaleg að þessu sinni! Epli, pekanhnetur og hnetusmjör …
Helgarbomban er rosaleg að þessu sinni! Epli, pekanhnetur og hnetusmjör í sínu besta formi! blaka.is

Helgarbomban frá Lilju Katrínu á Blaka.is er að þessu sinni rosaleg epla-, pekan- og hnetusmjörsbomba. Í nóvember er Lilja með eplaþema sem er vel þess virði að fylgjast með. 

Geggjuð epla-, pekan- og hnetusmjörskaka
 
„Ég bakaði þessa köku fyrir yndislegt fólk en var pínulítið stressuð um hvort þetta myndi ganga upp. Epli, pekanhnetur og hnetusmjör. Væri þetta skotheld blanda?
Það er skemmst frá því að segja að þessi kaka sló rækilega í gegn, ekki síst út af því að hún er frekar óvenjuleg,“ segir Lilja Katrín Gunnarsdóttir kát í kolvetnisþoku en hún er óhrædd við að prófa nýjar uppskriftir og segir það að mistakast oft vera upphafið að einhverju stórkostlegu.
„Ég viðurkenni það alveg að það þarf aðeins að nostra við hana en hún er alls ekki flókin. Og sama hvað þið gerið, ekki sleppa mulningnum sem ég notaði til að skreyta kökuna! Hann færir þessa köku upp á hærra plan!“
 
Pekanhnetumulningurinn kemur vel út á toppnum.
Pekanhnetumulningurinn kemur vel út á toppnum. blaka.is

Hráefni
Kökubotnar
▪ 3 bollar hveiti
▪ 2 tsk. lyftiduft
▪ 1 tsk. kanill
▪ 1/2 tsk. sjávarsalt
▪ 225 g mjúkt smjör
▪ 2 bollar sykur
▪ 2 tsk. vanilludropar
▪ 4 egg
▪ 1 bolli mjólk
3 bollar epli (afhýdd og skorin í litla bita)
▪ 1/2 bolli pekanhnetur (grófsaxaðar)
Pekanmulningur
▪ 1/2 bolli haframjöl
▪ 1/4 bolli pekanhnetur (grófsaxaðar)
▪ 1/4 bolli púðursykur
▪ 1/4 bolli hveiti
▪ 3 msk. mjúkt smjör
▪ 2 msk. hunang
Krem
▪ 200 g mjúkt smjör
▪ 600 g flórsykur
▪ 1/2 tsk. sjávarsalt
▪ 1 tsk. vanilludropar
Leiðbeiningar
Kökubotnar
Hitið ofninn í 180°C og takið til tvö hringlaga form sem eru sirka 20 sentímetra stór. Smyrjið þau vel og dustið hveiti inn í þau.
Takið 1/3 af hveitinu frá og blandið restinni saman við lyftiduft, kanil og salt.
Þeytið smjörið í 1-2 mínútur og blandið því síðan saman við sykurinn.
Bætið vanilludropum saman við smjörblönduna og bætið síðan eggjum saman við, einu í einu.
Skiptist síðan á að blanda hveitiblöndunni og mjólkinni saman við smjörblönduna þar til allt er vel blandað saman.
Blandið eplum og 1/3 bolla af hveitinu saman og blandið þeim síðan saman við deigið, sem og pekanhnetunum.
Deilið deiginu á milli formanna og bakið í 30-35 mínútur. Leyfið kökunum að kólna áður en kremið er sett á.
Pekanmulningur
Hækkið hitann á ofninum í 190°C og setjið smjörpappír á ofnplötu.
Blandið öllum hráefnum saman og dreifið blöndunni á ofnplötuna.
Bakið í 8-10 mínútur, en hrærið í blöndunni eftir ca 5 mínútur. Leyfið þessu að kólna og brjótið þetta síðan í litla bita.
Krem
Þeytið smjör og hnetusmjör saman í 2-4 mínútur.
Bætið flórsykri, vanilludropum og sjávarsalti saman við og hrærið vel. Ef kremið er of þykkt er hægt að bæta mjólk við, en bara 1 matskeið í einu.
Setjið krem á kökuna og skreytið hana að vild með pekanmulningnum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert