Grillaður maís með rjómaostasmyrju

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Góður maís er eitt það besta sem við fáum! Þegar við bjuggum í Bandaríkjunum keyptum við alltaf ferskan maís í hýðinu, létum hann liggja í bleyti fyrir eldun og hreinsuðum allt utan af honum. Eftir að maður byrjar að borða ferskan maís þá er nefnilega ekki aftur snúið skal ég segja ykkur, þetta er hreinlega ekki það sama og frosinn maís. Maís er oftast meðlæti en djúsí og góður maís sem þessi getur verið snarl, forréttur eða hvað sem þið viljið! Erlendis er til dæmis oft hægt að kaupa sér djúsí maís einan og sér í matarvögnum og þess háttar og þessi hér mun ekki svíkja ykkur!

Grillaður maís með rjómaostasmyrju

Uppskrift dugar fyrir 6 stykki

  • 6 x ferskur maís
  • 230 g Philadelphia-rjómaostur með lauk og graslauk
  • 30 g rifinn parmesan-ostur
  • 1 msk. lime-safi
  • 1 tsk. Tabasco-sósa
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. paprikuduft
  • ¼ tsk. chilli-flögur
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Smá smjör til penslunar

Aðferð:

  1. Ferskur kóríander til að strá yfir í lokin
  2. Sjóðið maísinn og hitið grillið í botn.
  3. Hrærið öllu öðru saman nema kóríander og smjöri.
  4. Takið maísinn upp úr pottinum þegar hann er tilbúinn, makið á hann vel af smjöri og smyrjið með þunnu lagi af rjómaostasmyrjunni.
  5. Grillið í stutta stund á öllum hliðum.
  6. Toppið síðan með vel af rjómaostasmyrju, parmesan og smá chilli-flögum ef þið þorið.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: