Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur þá ökumenn sem enn eru á nagladekkjunum til að skipta þeim út.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu en það segir að í ljósi veðurspár næstu daga sé óþarfi að vera á nagladekkjum núna.
Þá er það undirstrikað í tilkynningunni að frá og með 13. maí geti ökumenn bifreiða, búnum nagladekkjum, átt von á sekt.