Andlát: Guðmundur H. Garðarsson

Guðmundur fæddist í Hafnarfirði 17. október 1928. Foreldrar hans voru …
Guðmundur fæddist í Hafnarfirði 17. október 1928. Foreldrar hans voru Garðar Svavar Gíslason kaupmaður og Matthildur Guðmundsdóttir húsmóðir. Ljósmynd/Aðsend

Guðmundur H. Garðarsson fv. alþingismaður lést á Hjúkunarheimilinu Sóltúni aðfaranótt 18. apríl, 95 ára að aldri.

Guðmundur fæddist í Hafnarfirði 17. október 1928. Foreldrar hans voru Garðar Svavar Gíslason kaupmaður og Matthildur Guðmundsdóttir húsmóðir.

Guðmundur lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1950 og viðskiptafræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1954. Hann stundaði framhaldsnám í hagfræði í Kiel í Þýskalandi 1954-1955. Var í námi í endurtryggingum hjá Lloyd's í London árið 1955 og nam markaðsfræði hjá International Marketing Institute við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum árið 1965.

Guðmundur var skrifstofustjóri hjá Iðnaðarmálastofnun Íslands 1955-1961, fulltrúi og ritari stjórnar Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna árin 1961-1987 og sinnti síðar ýmsum sérverkefnum fyrir sama fyrirtæki. Hann vann lengi að verkalýðsmálum, var formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur 1957-1979 og sat í miðstjórn ASÍ 1966-1976.

Guðmundur var kjörinn á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík árið 1974 en hafði áður tekið sæti sem varaþingmaður. Hann var þingmaður allt til 1991 og kom í tvígang eftir það inn á þing sem varaþingmaður; í nóvember 1992 og nóvember 1994.

Hann átti lengi sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, bankaráði Verzlunarbanka Íslands og Íslandsbanka. Þá var hann í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna um árabil. Sat lengi í stjórn Fjárfestingarfélags Íslands, þar af formaður frá 1986 til 1992. Einnig var Guðmundur í stjórn Íslenskrar endurtryggingar, sat í tryggingaráði 1979-1983 og var fulltrúi í Þingmannasamtökum NATO. Þá var Guðmundur fyrsti formaður Varðbergs, félags ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, við stofnun þess 1961.

Eiginkona Guðmundar var Ragnheiður Guðrún Ásgeirsdóttir læknaritari, f. 1931, d. 2008. Synir þeirra eru Guðmundur Ragnar, f. 1956, og Ragnar Hannes, f. 1969. Barnabörnin eru fjögur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert