29 nautgripir fundust dauðir

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Styrmir Kári

Matvælastofnun (MAST) hefur kært til lögreglu alvarlega vanrækslu eftir að 29 nautgripir fundust dauðir í gripahúsi við eftirlit á lögbýli á Norðurlandi vestra.

Í tilkynningu á vef MAST segir að starfsmenn stofnunarinnar hafi í kjölfarið aflífað 21 nautgrip til viðbótar á staðnum sökum slæms ástands. Allt voru það gripir sem voru hýstir í húsinu.

Aðrir nautgripir, sem hafði verið haldið úti við, voru hýstir yfir nóttina, en síðan voru þeir færðir til slátrunar daginn eftir. Hræjum og skrokkum hefur þegar verið fargað á viðurkenndum urðunarstað, að því er fram kemur í tilkynningunni.

MAST hefur nú svipt umráðamanninn heimild til dýrahalds tímabundið, eða þar til dómur fellur í málinu, og gerir stofnunin jafnframt þá kröfu í kæru sinni að umráðamaður verði sviptur heimild til að hafa búfé í sinni umsjá, versla með það eða sýsla með öðrum hætti.

Málið er á borði lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert