Celeb frumflutti lag Barnamenningarhátíðar

Einar Þorsteinsson borgarstjóri með nemendum Hlíðaskóla.
Einar Þorsteinsson borgarstjóri með nemendum Hlíðaskóla. Ljósmynd/Aðsend

Mikið fjör var á sal Hlíðaskóla í dag þegar hljómsveitin Celebs frumflutti lag Barnamenningarhátíðar í ár: Spyrja eftir þér.

Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að Barnamenningarhátíð verður haldin dagana 23. – 28. apríl næstkomandi. Celebs munu flytja lagið Spyrja eftir þér fyrir fullum sal barna á opnun Barnamenningarhátíðar í Eldborgarsal Hörpu þann 23. apríl næstkomandi. Vettvangur hátíðarinnar er borgin öll og verða fjölbreyttir viðburðir á boðstólum fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Frítt er inn á alla viðburði.

Byggir á hugmyndum reykvískra barna um lýðræði

Þema Barnamenningarhátíðar í ár er lýðræði og unnu fjórðu bekkingar í Reykjavík þess vegna lýðræðisverkefni, en í ár eru 80 ár frá því að Ísland varð lýðveldi. Lagið er samið af hljómsveitinni Celebs, sem er skipuð systkinum frá Suðureyri, þeim Valgeiri Skorra, Hrafnkeli Huga og Kötlu Vigdísi, og textinn er byggður á svörum barnanna.

Systkinin þrjú eru þekkt fyrir skrautlega sviðsframkomu, eru algjörir húmoristar og brenna fyrir barnamenningu. Þau sögðu samstarfið með börnunum hafa verið rosalega skemmtilegt. „Það er svo mikil orka í börnunum og við getum ekki beðið eftir því að stíga á svið í Hörpu og flytja lagið okkar,“ segja liðsmenn Celebs.

Banna stríð og ofbeldi og fleiri ferðir til Tene

Nemendur Hlíðaskóla afhentu Einari Þorsteinssyni borgarstjóra bréf sem fjórðu bekkingar í Reykjavík skrifuðu sérstaklega til hans þar sem þau lýsa skoðunum sínum á samfélaginu og segja frá hverju þau vilja breyta. Meðal þess sem fram kemur í óskum barnanna er til dæmis að banna stríð og ofbeldi, kaupa mat fyrir þá sem þurfa, frið í heiminum, hætta að selja tóbak, McDonald‘s aftur á Íslandi, hraðskeiðari lyftur í skólana og fleiri ferðir til Tene, svo eitthvað sé nefnt.

Það var mikið fjör í sal Hlíðaskóla í dag.
Það var mikið fjör í sal Hlíðaskóla í dag. Ljósmynd/Aðsend
Hljómsveitin Celebs frumflutti lag Barnamenningarhátíðar í ár: Spyrja eftir þér
Hljómsveitin Celebs frumflutti lag Barnamenningarhátíðar í ár: Spyrja eftir þér Mynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert